Um Íslensku æskulýðsrannsóknina
Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ) er rannsókn sem Menntavísindastofnun innan Menntavísindasviðs Háskóli Íslands framkvæmir fyrir Mennta- og barnamálaráðuneytið á grundvelli 12 gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.
Niðurstöður verða birtar í mælaborði um farsæld barna, sem mennta- og barnamálaráðuneyti mun birta á haustmánuðum 2023.
Markmið verkefnisins er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungmenna og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun aðila sem koma að þjónustu og umönnun barna og ungmenna.
Grundvöllur verkefnisins liggur einnig í að skapa aðstæður til snemmbærs inngrips og stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra og styðja við innleiðingu löggjafar um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021.
Starfsmenn
Starfsmenn Menntavísindastofnunar sem koma helst að verkefninu:
Kristín Erla Harðardóttir – Forstöðumaður
Ragný Þóra Guðjohnsen – Faglegur stjórnandi
Hans Haraldsson – Gagnagrunnur og vefforrit
Ólöf Ragna Einarsdóttir – Samskipti við skóla og forprófanir
Unnar Geirdal Arason – Gagnagrunnur og sérskýrslugerð