Íslenska æskulýðsrannsóknin
Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ) er rannsókn sem Háskóli Íslands framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið á grundvelli 12. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Markmið verkefnisins er að afla gagna um líðan og viðhorf barna og ungmenna og gera niðurstöðurnar aðgengilegar til stuðnings við stefnumótun.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands er framkvæmdaraðili æskulýðsrannsóknarinnar.
Rannsóknir og kannanir í gangi
Íslenska æskulýðsrannsóknin hefur verið lögð fyrir í grunnskólum árlega frá skólaárinu 2021–2022, annað hvert ár í framhaldsskólum (frá og með 2023–2024) og fjórða hvert ár verður gerð símakönnun meðal ungmenna utan skóla.
Það er stefna Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar að allur aðgangur að niðurstöðum verði gjaldfrjáls og gagnagrunnurinn eins opinn og kostur er, svo lengi sem nafnleynd þátttakenda er tryggð. Yfirlit yfir niðurstöður og gagnagrunn rannsóknarinnar er aðgengilegt í vefforriti.