Íslenska æskulýðsrannsóknin

Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ) er rannsókn sem Háskóli Íslands framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið á grundvelli 12 gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Markmið verkefnisins er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungs fólks og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun. 

Menntavísindasvið Háskóla Íslands er framkvæmdaraðili æskulýðsrannsóknarinnar.

Rannsóknir og kannanir í gangi

Könnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar hefur verið lögð fyrir í grunnskólum árlega frá skólaárinu 2021-2022, annað hvert ár í framhaldsskólum (hófst 2023-2024) og fjórða hvert ár verður framkvæmd símakönnun meðal ungs fólks utan skóla.

Það er stefna ÍÆ að allur aðgangur að niðurstöðum verði gjaldfrjáls og gagnasafn eins opið og hægt er svo lengi sem nafnleynd þátttakenda er tryggð.  Yfirlit yfir niðurstöður og gagnagrunn ÍÆ er hægt að nálgast í vefforriti.